Amora þjónusta


Fagleg og áreiðanleg þrifaþjónusta fyrir heimili og fyrirtæki

Amora er fjölskyldufyrirtæki með yfir 12 ára reynslu í þrifaþjónustu. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, áreiðanleika og góða þjónustu.

Hjá Amora sinnum við fjölbreyttri þrifaþjónustu fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Við tökum að okkur þrif í sameignum, skólum, leikskólum, Airbnb eignum, sem og hjá litlum og stórum fyrirtækjum.

Við vinnum af fagmennsku og aðlögum þjónustuna að þörfum hvers og eins viðskiptavinar, hvort sem um er að ræða regluleg þrif eða einstök verkefni.

Við erum stöðugt að þróa þjónustuna okkar og erum opin fyrir nýjum verkefnum. Ef þú ert með óskir eða þarft þjónustu sem ekki er sérstaklega talin upp, hvetjum við þig til að hafa samband – við finnum lausn saman.